Líkami okkar og heilsa tel ég vera verðmætustu eign okkar. Við ættum að bera virðingu fyrir og hlusta á þau skilaboð sem líkaminn gefur. Ef heilsufarsvandamál koma upp og af hvaða toga sem er ætti að reyna að taka á þeim á sem heildstæðastan hátt.

Ég heiti Erna Líndal Kjartansdóttir er Uppeldisfræðingur að mennt með sérnám í fötlunarfræði/einhverfu.

Ég hef alltaf haft áhuga á heildstæðum meðferðum varðandi heilsu.

Zoneterapiskolen BodyMind
Ég bjó í Danmörku á þeim árum sem ég fór í 2ja ára nám í Svæðameðferð í Zoneterapiskolen “BodyMind” Útskrifaðist sem Svæðanuddari árið 2003.

Traditional Medical and Massage School
Áhugi minn á nuddi hélt áfram að vaxa og árið 2007 fékk ég tækifæri og fór til Thailands og skráði mig í Wat Pho, Thai, Traditional Medical and Massage School þar sem ég lærði,
“General Thai Massage”

Árið 2009 fór ég aftur til Thailands algjörlega heilluð af menningu sem og íbúum landsins og skráði mig í áframhaldandi nám í nuddi ásamt því að læra um jurtir og hvernig má nota þær sem góða viðbót við nudd.
“Addvanced Thai Medical Massage Therapy”

Í apríl árið 2023 lá leið mín aftur í Wat Pho skólann, nú til að bæta við námskeiði í nuddi um heilsu kvenna
“Massage for women´s health care”

Ég hef einnig tekið marga spennandi kúrsa sem styðja- og nýtast við nudd og vellíðan eins og t.d.

Moxa I og II
Moxa eru þurrkuð blöð af jurtinni Artemisia Vulgaris og þeim er rúllað upp í þéttan “vindil” pinna. Kveikt er í Moxa pinnanum og hitinn frá pinnanum er notaður á Acupuncture punkta og auma staði líkamans, einskonar nálastungur án nála.

Bach Flower Remedies
Dr. Edward Bach var læknir og homeopath í kringum 1930 og þróaði á sínum tíma 38 mismunandi blómadropa sem má nota við að koma á jafnvægi tilfinninga hjá einstaklingum.  Bach skipti dropunum niður í 7 meginflokka sem eiga að vinna með tilfinningar eins og ótta, óvissu, áhugaleysi og einmannaleika sem dæmi.

Ég býð upp á sjö nuddmeðferðir sem eru:
Yoga/Þrýstinudd
Heilnudd

Bak/Herðanudd
Olíu/Jurtanudd

Svæðanudd
Heilsueflandi nudd fyrir konur
Nudd fyrir verðandi mæður

Ég býð fólk á öllum aldri velkomið.

Erna Líndal Kjartansdóttir